Hulda

Hulda er hestakona í víðum skilningi þess orðs.  Hún þjálfar hross, kennir, bæði innanlands sem utan, skrifar greinar í hestatímarit og hefur. t.d. þýtt FIPO, alþjóðlegar keppnisreglur í hestaíþróttum, á íslensku.

Það skilur enginn neitt í því í fjölskyldu Huldu af hverju hún lenti í hestamennsku.  Þar veit enginn haus né sporð á hestum en með tímanum hefur fjölskyldan hætt að líta þessa áráttu hornauga og sýnir nú bara þó nokkurn skilning.  Foreldrar hennar eru Gústaf Jónsson tæknifræðingur sem er forstöðumaður Áhaldahúss Garðabæjar og Erla Árnadóttir, viðskiptafræðingur sem er framkvæmdastjóri bókhaldssviðs Seðlabanka Íslands.  Hún á eina þrjá bræður, alla yngri, Árna kerfisfræðing, Ómar sem er í doktorsnámi í efnaverkfræði og Arnar.  Hulda er fædd á Þingeyri og er Vestfirðingur að uppruna en ólst upp í Garðabænum.  Þar lá því beinast við að kíkja í Gust og þar hóf hún sína hestamennsku um fermingu.  Svo var það ekki fyrr en að hún var búin að þekkja Hinrik í ein 4 ár að hún ákvað að flytja sig í Fák og er í dag í stjórn Fáks og er nú orðinn eldheitur Fáksmaður.

Hún hóf keppni töluvert seinna en Hinrik, átti framan af ekki nema einn hest en naut frábærs félagsskapar og aðstoðar bræðranna Jóns og Kristbjörns kafara Þórarinssonar og fékk að leika lausum hala á gæðingum þeirra.  En þegar hún hófst handa lét hún sitt ekki eftir liggja.  Hún hefur orðið Íslandsmeistari nokkrum sinnum, er reyndar eina konan sem enn hefur orðið Íslandsmeistari í 5 gangi, hefur sigrað gæðingakeppni Fáks, orðið tvisvar Norðurlandameistari og í öðru sæti á Heimsmeistarmóti í 5 gangi, auk annarra minni sigra.  Meira af því á myndasíðunum.

Hulda gekk menntaveginn, tók stúdentspróf 1986 frá Menntaskólanum í Reykjavík og skelllti sér svo í viðskiptafræði.    Auk þessa hefur hún tekið íþróttadómarapróf og gæðingadómarapróf erlendis.  Lengst af hefur hún unnið við hestafyrirtækið en hefur þar þó tekið ýmis hliðarspor, á einkar erfitt með að segja nei.  Hún vann 2000-02 hjá Átaki í hestamennsku og hefur skrifað greinar og þýtt ýmislegt hestatengt efni auk þess að stjórna Reiðhallarsýningum.  Þularstörf hefur hún einnig tekið að sér af og til.  Auk þess að ríða út kennir hún heil ósköp, bæði hérlendis sem erlendis.  Hulda hefur einnig verið virk í félagsmálum, var í stjórn íþróttadeildar Gusts, var í stjórn FT, er í keppnisnefnd LH og dómaranefnd LH auk þess að hafa verið í stjórn Fáks.

Til baka


                        Hestvit ehf.  - Hinrik og Hulda - Árbakki - 851 Hella - sími 897 1748 og 897 1744 - hestvit@hestvit.is