Ný starfsstöð Hestvits og okkar - Árbakki

Já, það er ekki seinna að vænna að kynna það á þessari síðu að við erum flutt!

Við ákváðum semsagt að flytja aðalstöðvarnar á Árbakka, þessa miklu kostajörð.  Þar mun okkar starfsemi lítið breytast, við kaupum og seljum hross, kennum, flytjum út hross og nú höfum við bætt hrossaræktinni við.  Hér að neðan eru nokkrar myndir af Árbakka eins og leit út í ágúst 2005 eftir málningar og girðingarvinnu sumarsins.

Til þess að komast til okkar er ekið sem leið liggur austur yfir Hellisheiði og stefnan tekin á Hellu.  Rétt áður en komið er að Hellu er vegur á vinstri hönd, "Árbær" heitir hann og þar er beygt út af þjóðvegi númer 1 og eknir u.þ.b. 6 kílómetrar og þá blasir Árbakki við á hægri hönd.  Verið velkomin!

                                                                       

 

    

Til baka
Prentvæn útgáfa


                        Hestvit ehf.  - Hinrik og Hulda - Árbakki - 851 Hella - sími 897 1748 og 897 1744 - hestvit@hestvit.is