Sumarið 2005 var fyrsta tímabilið okkar á Árbakka. þar var duglega tekið til hendinni og því þurfti auðvitað margar hendur, eins og gefur að skilja.
Á myndinni má sjá út um skrifstofugluggann hennar Huldu, Lómadæla heitir tjörnin og eitthvað sést af splunkunýjum girðingum.
En margar hendur vinna létt verk. Gróa Björg Baldvinsdóttir kom og vann hjá okkur allt sumarið, hörkudugleg og alltaf í góðu skapi. Teitur Árnason reyndis heldur betur betri en enginn, fermdist í vor en var mjög duglegur og samviskusamur, hægt að treysta honum fyrir öllu. Jóihann G Jóhannesson, (Jói G eða Jói töff) kom til okkar frá Þýskalandi. Hann langar að breyta til og notaði sumarið til að hugsa sinn gang um leið og hann var "altmuligman" á Árbakka. Hann lagði parkett, girti, setti upp gerefti í kringum hurðir, hengdi upp ljós, hjálpaði við geldingar og svo mætti lengi telja. Aldeilis frábært að hafa Jóa, hann veit alltaf hvað og hvernig á að gera hlutina. Hann fór svo aftur út fyrir HM þar sem hann reið stóðhesti í sýningu, kom svo aftur heim til Íslands, og stefnir að því að flytja heim í haust. Nú svo stöldruðu aðrir styttra við, Óskar Sæberg kom og úðaði í sig lifrarkæfu og hjálpaði til, Pétur Örn, okkar gamli vinnumaður leit við af og til og járnaði einn og annan hestinn og svo mætti áfram telja. Frábær mannaskapur! 20. ágúst kom svo til okkar austurrísk stúlka, Daniela Pogatschnig sem hefur hjálpað okkur og verður þar til við fáum þjark í frumtamningar.