Við Asaból 6 við Vatnsveituveg á félagssvæði Fáks í Reykjavík erum við með hesthús. Hesthúsið sjálft tekur tæplega 60 hross í stíur, er vélmokað, bjart og skemmtilegt og á allan hátt frábært fyrir menn og hesta. Við eigum herlegheitin í félagi við góðar fjölskyldur sem eru: Anna Sigurðardóttir og Árni Guðmundsson ásamt börnum sínum, Agnesi Heklu og Teiti, Hauki Haukssyni og Ástu Möller, Jóhönnu Þorbjargardóttur og Þorbjörgu Sigurðardóttur.
Húsið var allt tekið í gegn af okkur fyrir þremur árum og á hverju ári er haldið áfram að breyta og bæta svo sífellt batnar aðstaðan.
Haustið 2005, eftir að hafa keypt Árbakka seldum við hlut af okkar hlut og notum nú hesthúsið sem starfsstöð vegna útflutningsins.
.