Í upphafi árs 2003 stofnuðu Hinrik og Hulda fyrirtækið Hestvit ehf til að halda utan um reksturinn sem sífellt verður fjölbreyttari og umfangsmeiri. Hinni átti hugmyndina að nafninu og það venst bara vel. Lógóið er búið til úr eldra lógói sem eru skuggamyndir af þeim hjónum, Hinrik er á Pjakki frá Torfunesi og Hulda á Hrefnu frá Gerðum og er hannað af auglýsingastofunni Tunglinu. Þessar myndir og margar fleiri gamlar og góðar má sjá í myndakaflanum.
Reksturinn felst í kaupum og sölu á hestum, innanlands sem utan. Þá tökum við að okkur að flytja út hesta, hvert á jörðu sem er. Kennsla er mikilvægur þáttur í rekstrinum, þar eru bæði Hulda og Hinni að. Jafnt innanlands sem utan. Nánar má lesa um það á tenglinum um kennslu. Auk þess tökum við að okkur hvers konar ráðgjöf um alt sem lýtur að hestamennskunni.
Allajafna störfum við tvö hjá Hestviti en á veturna er hjá okkur starfskraftur. Meira um það annarsstaðar hér á síðunni.
Hestvit ehf, Árbakka, 851 Hella, sími +354 587 1748, hestvit@hestvit.is, mobile: +354 897 1744 og +354 897 1748