Árið 1992 fæddist Edda Hrund og er þar með frumburðar þeirra hjóna Huldu og Hinna. Hún er hestastelpa af lífi og sál og ríður út eins af miklu kappi. Hún aðstoðaði líka af og til í reiðskólanum hjá Tómasi Ragnarssyni og Þóru Þrastardóttur, Faxabóli. Hún varð Íslandsmeistari 2004 á Ísak frá Ytri-Bægisá og varð í fimmta sæti í úrslitum barnaflokks á Landsmótinu 2004 sumar á stóðhestinum Snæfaxa frá Selfossi. Á Landsmótinu 2006 varð hún svo í 7. sæti, nú komin í unglingaflokk á hestinum sínum honum Glæsi frá Ytri-Hofdölum. Á Landsmótinu 2008 varð hún í 10 sæti á Tóni frá Hala.
Hún hefur lært það af reynslu að það fylgja því kostir og gallar að eiga foreldra í atvinnuhestamennsku. Stundum nýtur hún þess að fá að prófa alls kyns flotta gæðinga en í staðinn þarf hún líka stundum að sjá á bak uppáhaldshestunum sínum, þegar þeir eru seldir. Svo þess vegna keppir hún á ýmsum hestum, þeim sem standa til boða í það og það skiptið.
Sumarið 2008 tók Edda þátt í Norðurlandamóti í hestaíþróttum og stóð sig með miklum sóma. Varð í 5 sæti í fjórgangi, 4 sæti í samanlögðu og 3 sæti í tölti. Hún keppti á Tóni frá Hala sem kvaddi þar með fjölskylduna á Árbakka og fór til Suður-Þýskalands til nýrra eigenda.
Haustið 2008 hóf Edda Hrund nám við MS, er nú orðin menntaskólamær og er nú yfir vetrartímann í Reykjavík. Heldur er nú tómlegt þegar Eddu vantar á Árbakka en svona er nú lífið, fólk eldist og er víst ekki endalaust heima hjá pabba og mömmu.
Hér að neðan er hún með heimilishundinn Ölfu í fanginu. Sú er af miklum hestahundaættum, undan Hvelli hans Gunna Arnars og Nínu heitinni Tómasar Ragnarssonar. Amma hennar er svo Lína hans Kidda Bjarna og langamma hennar er Táta hans Loga Laxdal, annálaður skeiðhundur.
Edda lagði nú nýlega (janúar 2007) inn formlega kvörtun til mömmu sinnar um að myndin væri orðin heldur gömul. Svo hér er ný mynd af dömunni, tekin í herberginu hennar haustið 2006. Ég vona að hún sé ánægðari með þessa mynd :)
Í janúar 2009 fann svo mamman upp á því sjálf að setja inn nýja mynd en heldur gömlu myndunum samt með.