
Á hverju ári bćtast viđ fleiri sýndar og góđar hryssur. 2007 notuđum viđ Aron frá Strandarhöfđi, Hnokka frá Fellskoti, Glóđar frá Reykjavík, Sć frá Bakkakoti, Vilmund frá Feti og vorum svo lukkuleg ađ fá eitt folald undan Óđi frá Brún, eitt af hans síđustu folöldum en hann ţurfti ađ fella eftir slys haustiđ 2007 og var okkur mikill harmdauđi.
Viđ höfum ţann háttinn á ađ nefna folöldin smám saman, eftir ţví sem viđ kynnumst ţeim og ţví eru enn nokkur nafnlaus ţegar ţetta er skrifađ í janúar 2009. Í myndabanknum ađ neđan eru svo myndir af flestum folaldanna. Sem fyrr má smella á nöfn foreldranna og ţá birtast um ţau frekari upplýsingar. Ţetta ár var sannkallađ "hestaár" á Árbakka, viđ eigum einungis 3 hryssur eftir á móti 9 hestum. Vonandi snýst ţetta viđ á nćsta ári :)
Hér er svo listinn:
1. Sigurbođi frá Árbakka, móbrúnn F: Aron frá Strandarhöfđi M: Toppa frá Ármóti. Mikiđ töltgengur, fallegur foli.
2. Grunur frá Árbakka, jarpur, F: Óđur frá Brún (Heiđursverđlaun f afkvćmi) FF: Stígur frá Kjartansstöđum FM: Ósk frá Brún M: Gríma frá Árbakka. Fallegur foli, virđist ćtla ađ verđa fallega fextur eins og mamma hans.
3. Dári frá Árbakka, móbrúnn. F: Aron frá Strandarhöfđi M: Dimma frá Efri-Rauđlćk. Gullfallegur foli, spennandi efni.
4. Hari frá Árbakka, rauđur. F: Aron frá Strandarhöfđi M: Hind frá Árbakka. Háfćttur mjög fallegt folald. Ţennan fola geltum viđ voriđ 2009.
5. Róbert frá Árbakka, jarpur, F: Aron frá Strandarhöfđi M: Rebekka frá Borgarholti. Mjög flott folald, hágengur og sperrtur.
6. Gnýr frá Árbakka, rauđur. F: Sćr frá Bakkakoti (Heiđursverđlaun f afkvćmi) FF: Orri frá Ţúfu, FM: Sćla frá Bakkakoti M: Gnótt frá Ási I. Fallegur, hágengur foli, fer mest á brokki. Ţennan fola geltum viđ 2009.
7. Gneisti frá Árbakka, brúnstjörnóttur F: Glóđar frá Reykjavík AE 8,.34 FF: Rođi frá Múla FM. Glóđ frá Möđruvöllum M: Gyđja frá Möđrufelli. Virkilega flottur foli, fer á hágengur brokki. Skemmtilegur karakter sem var nánast spakur frá fyrsta degi. Geltur 2009.
8. Apríl frá Árbakka, móbrúnn F: Aron frá Strandarhöfđi M: Ţota frá Árbć. Gullfallegur foli. Hann varđ frćgur í fréttum ţegar mamma hans vildi hann ekki og fósturmóđir tók hann ađ sér. Sú hefur hugsađ vel um hann, heitir Perla frá Gili, mikil móđir.
9. Glóđar frá Árbakka, rauđstjörnóttur F: Glóđar frá Reykjavík M: Fluga frá Garđi. Óvenju framfallegur foli, ţroskamikill og stór.
10. Hnokkadís frá Árbakka, rauđblesótt. F: Hnokki frá Fellskoti M: Saga frá Árbakka. Varđ önnur á folaldasýningu á Borg haustiđ 2008. Seld til hollenskra hjóna.
11. Róshildur frá Árbakka, fífilbleikstjörnótt. F: Hnokki frá Fellskoti M: Rósa frá Svalbarđa. Sérlega framfalleg hryssa.
12. Erla frá Árbakka, móbrún F: Aron frá Strandarhöfđi M: Edda frá Skíđbakka. Falleg hryssa, sú eina undan Aroni ţetta áriđ.
13. Vilma frá Árbakka, jarpstjörnótt F: Vilmundur frá Feti (Sigurvegari LM2006) FF: Orri frá Ţúfu FM: Vigdís frá Feti. M: Embla frá Oddgeirshólum. Gullfalleg hryssa sem ţýtur um á öllum gangi.