Flugdís og Sumarliði, mæðurnar í baksýn

 Flugdís og Sumarliði fædd 2009

Hér að neðan eru folöld fædd árið 2009 á Árbakka.  Eftir því sem tíminn líður bæti ég hér inn myndum af hverjum og einum.

 

Askur frá Árbakka

Askur frá Árbakka er jarpur að lit og fæddur þann 5.júlí 2009.

Eitt allra fallegasta folald sumarsins, grannbyggður og háfættur.  Móðirin Embla Baldursdóttir frá Oddgeirshólum með 8.08 í aðaleinkunn og undan Aroni frá Strandarhöfði.

Svifmikið brokk og svo glittir í tölt, þetta er virkilega spennandi foli.

Til baka


                        Hestvit ehf.  - Hinrik og Hulda - Árbakki - 851 Hella - sími 897 1748 og 897 1744 - hestvit@hestvit.is