Flugdís og Sumarliði, mæðurnar í baksýn

 Flugdís og Sumarliði fædd 2009

Hér að neðan eru folöld fædd árið 2009 á Árbakka.  Eftir því sem tíminn líður bæti ég hér inn myndum af hverjum og einum.

 

Salvar Örn frá Árbakka

Salvar Örn er fyrsta afkvæmi Sylvíu Nætur sem fæðist á Árbakka og er fæddur 10. júní 2009

Undan Erni frá Efri-Gegnishólum (8.34) og Sylvíu Nótt frá Haukagili, Otursdóttur með 8.05 í aðaleinkunn.  Spennandi blanda og það verður gaman að sjá hvernig þessi foli þróast.  Hann er brúnn að lit.

Sylvía Nótt var óskaplega feimin með þetta fyrsta folald sitt og því á ég alveg ótrúlega fáar myndir af honum.  Tókst með herkjum að finna tvær.

Til baka


                        Hestvit ehf.  - Hinrik og Hulda - Árbakki - 851 Hella - sími 897 1748 og 897 1744 - hestvit@hestvit.is