Flugdís og Sumarliði, mæðurnar í baksýn

 Flugdís og Sumarliði fædd 2009

Hér að neðan eru folöld fædd árið 2009 á Árbakka.  Eftir því sem tíminn líður bæti ég hér inn myndum af hverjum og einum.

 

Dröfn frá Árbakka

Dröfn frá Árbakka er undan Drífu frá Miðhjáleigu og Hlyni frá Ragnheiðarstöðum, nýrri hryssu hér á Árbakka.

Hún er fædd þann 8.júní 2009 og er rauð með örlitla stjörnu í enni.

Drífa er undan Stormi frá Bólstað og er alhliða hryssa með 7.71 í aðaleinkunn og Hlynur er undan Aroni frá Strandarhöfði og Rás, hinni frægu tölthryssu frá Ragnheiðarstöðum.  Stór og myndarleg, fallega geng, virkilega álitleg hryssa.  Myndin af henni er tekin í desember og birtan ekki upp á það besta.

Svo er hér önnur af henni nýfæddri.

Til baka


                        Hestvit ehf.  - Hinrik og Hulda - Árbakki - 851 Hella - sími 897 1748 og 897 1744 - hestvit@hestvit.is