Valka frá Árbakka f 2009
Flugdís og Sumarliði fædd 2009
Hér að neðan eru folöld fædd árið 2009 á Árbakka. Eftir því sem tíminn líður bæti ég hér inn myndum af hverjum og einum.
Mardís frá Árbakka er fædd þann 27.maí 2009
Hún er undan Hirti frá Holtsmúla og Myrru frá Árbakka, hálfsystur Gellis frá Árbakka. Rauðstjörnótt að lit, stór og myndarleg.
Undan Myrru eru að koma flott hross svo við efumst ekki um að þarna er gæðingur á ferð.
Neðri myndin er tekin í desember og birtan ekki alveg nógu góð en það sést hvað hún er myndarleg.