Valka frá Árbakka f 2009
Flugdís og Sumarliði fædd 2009
Hér að neðan eru folöld fædd árið 2009 á Árbakka. Eftir því sem tíminn líður bæti ég hér inn myndum af hverjum og einum.
Hinn rauðskjótti Trúboði fæddist þann 25.maí 2009.
Undan hinni flugvökru, gráskjóttu Toppu og Þóroddi frá Þóroddstöðum. Toppa virðist ekki ætla að verða sterk á gráa litinn, þriðji hesturinn undan henni og sá þriðji sem ekki sýnist ætla að verða grár. Vorboði undan Aroni er brúnskjóttur, Sigurboði undan Aroni er móbrúnn og Trúboði undan Þóroddi rauðskjóttur.
Hann er greinilega alhliða gengur og ber sig fallega. Gaman að sjá hvað verður úr þessum fola. Hér er hann á fljúgandi tölti með mömmu sinni. Að neðan er svo mynd af honum tekin í desember 2009 þar sem heldur betur hefur tognað úr honum. Eins og sjá má eru engin merki þess að hann ætli að verða grár blessaður.