Flugdís og Sumarliði, mæðurnar í baksýn

 Flugdís og Sumarliði fædd 2009

Hér að neðan eru folöld fædd árið 2009 á Árbakka.  Eftir því sem tíminn líður bæti ég hér inn myndum af hverjum og einum.

 

Hjördís frá Árbakka

Hjördís frá Árbakka fæddist þann 20. maí 2009.  Undan Hirti frá Holtsmúla og Gyðju frá Möðrufelli.Hjördís frá Árbakka

Kolsvört og gullfalleg.  Foreldarnir eru Hjörtur frá Holtsmúla sem Hinrik sýndi í glæsilega einkunn 2008, 8,86 fyrir hæfileika og Gyðju frá Möðrufelli, alhliða gæðingshryssu sem okkur láðist að sýna.

Mikill og rúmur gangur, ótrúlega háfætt og orðin vel stór.  Spennandi hryssa.

Til baka


                        Hestvit ehf.  - Hinrik og Hulda - Árbakki - 851 Hella - sími 897 1748 og 897 1744 - hestvit@hestvit.is