Valka frá Árbakka f 2009
Flugdís og Sumarliði fædd 2009
Hér að neðan eru folöld fædd árið 2009 á Árbakka. Eftir því sem tíminn líður bæti ég hér inn myndum af hverjum og einum.
Sumarliði frá Árbakka fæddist þann 23. apríl 2009, á sumardaginn fyrsta og var því umsviflaust nefndur Sumarliði
Hann er undan Aroni frá Strandarhöfði (AE: 8,54) og Þotu frá Árbæ (8.30) og er hann annað folald hennar og annað hestfolaldið undan Aroni. Rauður að lit og gullfallegur, háfættur og sperrtur.
Fer á tölti og brokki og hreyfir sig verulega fallega. Þota tók þennan í sátt en eins og sumir muna þá vildi Þota ekki tala við albróður hennar, Apríl frá Árbakka svo við neyddumst til að finna fyrir hana fósturmóður. En Sumarliði dafnar vel og við erum spennt að sjá hvað verður úr þessum flotta fola.