Á þessari síðu eru upplýsingar um þær hryssur sem eru í ræktun á Árbakka. 
 Góða skemmtun við að skoða!
Here you can see a list of our mares.  In the spring of 2009 we are expecting foals from 9 first price mares. 
 
| Hryssur

Drífa frá Miðhjáleigu - Aðaleinkunn 7,71

Drífa frá Miðhjáleigu er alhliða hryssa, hreingeng og flugvökur.  Viljug og skemmtileg.

Drífa var lengst af í eigu Susi Haugaard sem hefur unnið hjá okkur með hléum frá því 2003.  Drífa er fædd 1993 og þar sem Susi er landlaus ákvað hún að gefa frúnni á Árbakka Drífu gegn því að hún hugsaði vel um hana.  Það er auðvitað sjálfsagt.   Sjálf á hún þrjúafkvæmi hennar, Diðrik sem er flínkur töltari, Drift sem er undan Snæfaxa frá Selfossi og er efnileg hryssa og Dísel frá Grenstanga.

Drífa er myndarleg stóðhryssa með marga góða kosti sem án efa eiga eftir að skila sér til afkvæma hennar. 

F: Stormur frá Bólstað undan Otri frá Sauðárkróki og Von frá Bjarnastöðum

M: Abba frá Miðhjáleigu undan Stjarna frá Bjóluhjáleigu og Svönu frá Svanavatni sem var undan Herði frá Kolkuósi.

Afkvæmi:

2001: Diðrik frá Grenstanga, rauður undan Jöfri frá Blesastöðum

2003: Fluga frá Flugumýri II sem er ófeðruð

2005: Drift frá Grenstanga undan Snæfaxa frá Selfossi, Hrafnssyni

2007: Dísel frá Grenstanga undan Flögra Glampasyni frá Útnyrðingsstöðum

2009: Dröfn frá Árbakka, er fyrsta folaldið undan henni sem fæðist í okkar eigu.  Rauðstjörnótt undan Hlyni frá Ragnheiðarstöðum

2010: Drífa er fylfull við Aroni frá Strandarhöfði

Víðidalur seinni sýning

Dagsetning móts: 28.05.2000 - Mótsnúmer: 02
Íslenskur dómur

IS-1993.2.84-539 Drífa frá Miðhjáleigu

Sýnandi:

Mál (cm):

139   138   65   142   27,0   18,0  

Hófa mál:

V.fr. 8,8   V.a. 8,2  

Aðaleinkunn: 7,71


Sköpulag: 7,43

Kostir: 7,90


Höfuð: 8,5

Háls/herðar/bógar: 7,0

Bak og lend: 7,0

Samræmi: 7,0

Fótagerð: 8,0

Réttleiki: 7,0

Hófar: 8,0

Prúðleiki: 7,5

Tölt: 7,5

Brokk: 8,0

Skeið: 8,5

Stökk: 7,5

Vilji og geðslag: 8,5

Fegurð í reið: 7,5

Fet: 6,5

Hægt tölt: 7,0



                        Hestvit ehf.  - Hinrik og Hulda - Árbakki - 851 Hella - sími 897 1748 og 897 1744 - hestvit@hestvit.is