
Hind er hreinræktuð Kolkuóshryssa og hefur gefið tryppi með frábæra frambyggingu. Háfætt og fallega geng og það eina sem við erum búin að temja, Hatta reyndist hágeng og geðgóð.
F: Svaði frá Árbakka, FF: Byskup frá Hólum FM: Embla frá Árbakka
M: Freyja frá Stokkhólma MF: Sindri frá Stokkhólma MM: Gullblesa frá Kirkjubæ
Hér er mynd af Hind með Arnari frá Árbakka, syni hennar undan Erni frá Efri-Gegnishólum.
Afkvæmi:
2004 Hatta frá Árbakka undan Gelli frá Árbakka, seld norður í Húnavatnssýslu
2005 Skurður frá Árbakka, brúnskjóttur undan Létti frá Árbakka. Honum björguðum við naumlega úr skurði þegar hann var örfárra vikna gamall og þaðan kemur nafnið.
2006 Prins frá Árbakka, brúnn undan Pegasus frá Skyggni, seldur til fjölskyldu Eiðs Smára Guðjohnsen
2007 Heimir frá Árbakka, móálóttur undan Óskahrafni frá Brún, sedur til Austurríkismanns sem geymir hann enn um sinn á Ísland
2008 Hari frá Árbakka, rauður hestur undan Aroni frá Strandarhöfði
2009 Arnar frá Árbakka undan Erni frá Efri-Gegnishólum
2010 er Hind því miður geld