
Toppu frá Ármóti muna margir eftir með Hinna á baki m.a. á Landsmóti 2006 í skeiði. Hún hefur feikn fallegt skeiðsnið, er hágeng og skrefmikil á því. En Toppa er langt í frá einhliða skeiðhross, hún er feikna rúm á brokki, mikið hágeng og viljug. Hún er fædd 1998. Það eiginlega gleymdist að sýna hana, árið sem hún var hér í þjálfun en það má vel vera að bætt verði úr því við tækifæri. Hún er gráskjótt og fyrsta afkvæmið hennar er brúnskjótt, annað brúnt og það verður spennandi að sjá hvað kemur í vor.
Hennar besti tími í 100m er 7,67 og 22,8 í 250 m skeiði . Hinna þótti mikið til hennar koma í þjálfun og við höfum mikla trú á henni og er hún mikil uppáhaldshryssa hér í stóðinu. Hún er sannkallaður hagaljómi, fallega fext og fríð.
Á myndinni skeiðar hún í gegnum Ölfushöllina þar sem hún var í úrslitum í meistaradeild VÍS í hraðaskeiði í gegnum höllina og fyrir neðan er hún úti á túni.
F: Toppur Eyjólfsstöðum FF: Hrafn frá Holtsmúla (Heiðursverðlaun f afkvæmi) FM: Sera frá Eyjólfsstöðum
M: Mjöll frá Akureyri MF:Flekkur frá Yzta-Gerði MM: Fífa frá Akureyri u Gáska frá Hofsstöðum.
Afkvæmi:
2007 Vorboði frá Árbakka undan Aroni frá Strandarhöfði
2008 Sigurboði frá Árbakka undan Aroni frá Strandarhöfði
2009 Trúboði frá Árbakka undan Þóroddi frá Þóroddsstöðum
2010 er Toppa fylfull við Hnokka frá Fellskoti