
Gríma er ein af þeim hryssum sem við eignuðumst þegar við keyptum Árbakka. Sannkölluð hagaprýði, enda faxprýði hennar með ólíkindum. Enda með 10 fyrir þann þátt.
En hún er ekki bara falleg þessi elska. Hún er hágeng og stórstíg klárhryssa og við höfum mikla trú á henni í ræktuninni. Hún átti afkvæmi áður en við eignuðumst hana en nokkur eigum við sem lofa góðu, þar af ein sem er orðin nokkuð tamin. Við kynntumst henni ekki sjálf í reið en vinur okkar Siggi Sig sýndi hana og er búin að segja okkur allt um hana en þekking á ræktunarhryssunum í reið er að okkar mati eitt af grundvallaratriðunum í hrossarækt.
F: Vökull frá Árbakka FF: Byskup frá Hólum FM: Valkyrja frá Kolkuósi
M: Dýna frá Breiðabólsstað MF: Héðinn frá Vatnagörðum MM:Elding frá Grímstungu
Afkvæmi:
2003 Ræsir frá Árbakka, seldur til Danmerkur fyrir okkar tíma á Árbakka
2004, Vika frá Árbakka, undan Vígari frá Skarði. Hún er orðin nokkuð tamin, hágeng, vígaleg klárhryssa, var heldur róleg framan af en er öll að koma. Hún fékk bygginardóm í ágúst 2009 upp á 7.88
2006 Grímhildur frá Árbakka, undan Leikni frá Vakurstöðum, brúnstjörnótt
2007, Ginning frá Árbakka, rauð undan Aroni frá Strandarhöfði, gullfalleg og ætlar að fá faxið hennar mömmu sinnar. Seld sumarið 2008
2008 Grunur frá Árbakka, jarpur hestur undan Óði frá Brún, einna síðustu droparnir úr Óði heitnum fóru í þennan hest sem okkur líst vel á, framfallegur og sperrtur
2009, Gordon frá Árbakka undan Aroni frá Strandarhöfði
2010 er Gríma því miður geld
Gríma er svakaleg fyrirsæta, stillir sér alltaf upp með eyrun fram þegar ég mæti með myndavélina. Það er erfiðast að velja bara eina mynd :)
141 139 67 144 28,0 18,5
V.fr. 8,3 V.a. 7,5
Sköpulag: 8,11 |
Kostir: 7,82 |
|
Höfuð: 7,5 Skarpt/þurrt Slök eyrnastaða Háls/herðar/bógar: 8,5 Grannur Skásettir bógar Bak og lend: 8,0 Samræmi: 7,5 Flatar síður Fótagerð: 9,0 Mikil sinaskil Öflugar sinar Prúðir fætur Réttleiki: 7,5 Afturfætur: Nágengir Hófar: 7,5 Lágir hælar Efnisdeigir Prúðleiki: 10,0 |
Tölt: 8,5 Brokk: 8,5 Skeið: 5,0 Stökk: 7,5 Þungt Vilji og geðslag: 8,5 Ásækni Þjálni Fegurð í reið: 8,0 Mikið fas Framsett Fet: 8,5 Hægt tölt: 8,5 Hægt stökk: 8,0 |