
Saga frá Lynghaga er mikill gæðingur og er orðin þekkt á keppnisbrautinni. Hún er viljug, hreingeng og flugrúm, ekki bara á skeiði heldur líka á brokki og tölti. Taugasterk og alltaf til í að taka á.
F: Stígur frá Kjartanstöðum (Heiðursverðlaun f afkvæmi) FF: Náttfari frá Ytra-Dalsgerði (Heiðursverðlaun f afkvæmi) FM: Terna frá Kirkjubæ (Stóðhestamóðir mikil)
M: Rimma frá Ásgarði MF: Penni frá Arnarhóli, mikill gæðingur og skeiðgarpur MM: Dúna frá Strönd.
Á afrekalista Sögu eru verðlaun í 100 m skeiði, Íslandsmeistaratitill í opnum flokki gæðingaskeiðs, sigurvegari vorgæðingamóts Fáks, B úrslit í A flokki á Landsmóti og svo mætti lengi telja. Því miður hefur gengið illa að koma folaldi í hana Sögu okkar en hún fær nú samt að vera hér með á lista. Einu sinni hefur verið staðfesti í henni fyl en því miður lét hún því og síðan ekki söguna meir. Saga er fædd 1992. Hún var með góð fyrstu verðlaun þegar við eignuðumst hana en okkur langaði að ná í "skeiðeinkunnina hennar" svo hún var sýnd aftur 2007 og hlaut þá þennan dóm.
138 134 65 140 26,5 17,0
V.fr. 9,3 V.a. 8,3
Sköpulag: 7,90 |
Kostir: 8,55 |
|
Höfuð: 8,0 Vel opin augu Háls/herðar/bógar: 8,5 Grannur Hátt settur Klipin kverk Bak og lend: 8,0 Samræmi: 8,0 Hlutfallarétt Fótagerð: 7,0 Réttleiki: 8,5 Hófar: 7,5 Prúðleiki: 7,0 |
Tölt: 8,5 Taktgott Mjúkt Brokk: 8,0 Taktgott Skeið: 9,5 Ferðmikið Takthreint Öruggt Stökk: 8,0 Vilji og geðslag: 9,0 Ásækni Þjálni Fegurð í reið: 8,0 Fet: 7,5 Hægt tölt: 8,5 Hægt stökk: 7,5 |