NEW! From now on the "horses for sale" page and the "export" page will be in English. The breeding page is now ready, there you will find information about our stallions and breeding mares and their offsprings. Some of the young ones may be for sale, just ask if you are interested! Have fun looking!
Góða skemmtun við að skoða og takið eftir myndinni hér efst, þar er ekki allt sem sýnist....
Eftir dálitla umhugsun var ákveðið að skella sér á Sumarsmell Harðar og keppa þar á þeim Kjuða og Sveig. Og þau Hulda og pésarnir hennar, eins og þeir Sveigur og Kjuði eru kallaðir á Árbakka, gerðu góða ferð þangað.
Kjuði og Hulda sigruðu fjórganginn með stæl með 7.47 í einkunn. Kjuði er að fá yfir 8 fyrir brokk og stökk og er enn í framför eftir veikindi vorsins.
Sveigur og Hulda voru þriðju eftir forkeppni en enduðu í öðru sæti með einkunnina 7.78.
Gaman að finna að þeir eru kátir og hressir og ekki síst að þeir voru enn kátir og hressir eftir helgina og eru núna í undirbúningsferli fyrir mót ágústmánaðar.
Maríanna Gunnarsdóttir tók myndirnar af Kjuða, takk fyrir það Maríanna og myndin af Sveig er tekin af vinnukonunni okkar henni Mimi Wenzel.
Kjuði á hægu tölti í forkeppninni
Kjuði á greiðu tölti í úrslitunum
Kjuði brokkar
Sveigur í Mosfellsbæ