Hestar til sölu
Blúnda frá Skíðbakka, a beutiful chestnut with light mane and tale and a blaze is for sale. She is pregnant after the great stallion Aron


 


 

Leita

_

Hestvit ehf er fyrirtæki sem Hinrik Bragason og Hulda Gústafsdóttir stofnuðu um rekstur hestaviðskipta sinna.

Fyrirtækið kaupir hesta og selur, annast hestaútflutning sem og kennslu og hvers konar ráðgjöf, innanlands sem utan.  Það kemur einfaldlega að öllu sem lýtur að íslenska hestinum!

Á þessum síðum má finna ýmsar upplýsingar um fyrirtækið og þau sem á bak við það standa. 

NEW!  From now on the "horses for sale" page and the "export" page will be in English.   The breeding page is now ready, there you will find information about our stallions and breeding mares and their offsprings.  Some of the young ones may be for sale, just ask if you are interested!   Have fun looking!

Góða skemmtun við að skoða og takið eftir myndinni hér efst, þar er ekki allt sem sýnist....


22. júlí 2010 | 11:22

Hnoppa frá Árbakka

Uppáhaldshryssan hans Hinna, vekringurinn Toppa frá Ármóti var næst til að skila folaldi.  Þann 27. júní kastaði hún fífilbleikblesóttri hryssu.

Hnoppa er hennar fyrsta hryssa svo það var mikil gleði!  Hún er áður búin að eignast þrjá hesta, tvo Aronssyni og einn undan Þóroddi.   Ennþá virkar hún ekki þannig að hún ætli að grána en það kemur betur í ljós þegar líður á sumarið.  Ennþá hefur Toppa ekki eignast eitt einasta grátt afkvæmi af þeim 5 sem fædd eru. 

Hnoppa er háfætt og hálslöng eins og hálfsystkini hennar undan Hnokka frá Fellskoti önnur.  Hún fer á öllum gangi og skeiðar mikinn við hlið móður sinnar.  

Hún er mjög fim og flínk og þegar við vorum að taka myndirnar af henni tók hún einn léttan afturfótarsnúning, alveg upp á punkt og kommu, hárréttan!  Eins og sjá má á myndinni :) 

 

 

 

Hnoppa tekur léttan afturfótarsnúning



                        Hestvit ehf.  - Hinrik og Hulda - Árbakki - 851 Hella- sími 897 1748 og 897 1744 - hestvit@hestvit.is