Hestar til sölu
Blúnda frá Skíðbakka, a beutiful chestnut with light mane and tale and a blaze is for sale. She is pregnant after the great stallion Aron


 


 

Leita

_

Hestvit ehf er fyrirtæki sem Hinrik Bragason og Hulda Gústafsdóttir stofnuðu um rekstur hestaviðskipta sinna.

Fyrirtækið kaupir hesta og selur, annast hestaútflutning sem og kennslu og hvers konar ráðgjöf, innanlands sem utan.  Það kemur einfaldlega að öllu sem lýtur að íslenska hestinum!

Á þessum síðum má finna ýmsar upplýsingar um fyrirtækið og þau sem á bak við það standa. 

NEW!  From now on the "horses for sale" page and the "export" page will be in English.   The breeding page is now ready, there you will find information about our stallions and breeding mares and their offsprings.  Some of the young ones may be for sale, just ask if you are interested!   Have fun looking!

Góða skemmtun við að skoða og takið eftir myndinni hér efst, þar er ekki allt sem sýnist....


13. júlí 2010 | 19:44

Gullmót í Reykjavík - fyrsta utanhúss íþróttamót ársins

Helgina 2. og 3. júlí var haldið íþróttamót í Reykjavík, það fyrst utandyra þetta árið sem fjölskyldan á Árbakka mætir á.

Gamla settið tók sér frí en yngri kynslóðin lét ljós sitt skína.  Jón Bjarni var í úrslitum í fimmgangi ungmenna, Mimi stóð sig vel á Víku frá Árbakka, 6 vetra Vígarsdóttur.  Gústaf Ásgeir og frændi hans Hinrik Ragnar Helgason kepptu í unglingaflokki og stóðu sig með miklum sóma, Gústaf varð þriðji í fjórgangi, Hinrik fjórði í tölti og Gústaf varð ásamt Arnóri Dan efstur og jafn í tölti og tapaði því  dómararöðun.  Drengirnir sýndu frábæra reiðmennsku og voru flottir fulltrúar ungu kynslóðarinnar. 

Hér með eru myndir af þeim frændum, Gústaf á Naski frá Búlandi, 8 vetra Stælssyni og Hinrik á Konserti frá Skarði, Keilissyni.

 

Hinrik Ragnar og Konsert í sveiflu



                        Hestvit ehf.  - Hinrik og Hulda - Árbakki - 851 Hella- sími 897 1748 og 897 1744 - hestvit@hestvit.is