NEW! From now on the "horses for sale" page and the "export" page will be in English. The breeding page is now ready, there you will find information about our stallions and breeding mares and their offsprings. Some of the young ones may be for sale, just ask if you are interested! Have fun looking!
Góða skemmtun við að skoða og takið eftir myndinni hér efst, þar er ekki allt sem sýnist....
Eftir skrýtið vor mættu hross í fyrsta skipti á þessu ári til kynbótasýninga úr hesthúsinu á Árbakka. Það var eiginlega einkennileg tilfinning að vera aftur mættur í "vinnuna", að sýna og keppa á hrossum. Öll stóðust hrossin hina heilsufarslegu prufu, það er héldu heilsu í gegnum erfiða sýningu en það mátti merkja á þeim að þetta tók á og úthaldið er ekki komið á sama stig og það var áður en þau veiktust.
Það voru sex hross sem við sýndum. Raketta frá Kjarnholtum fór í fín fyrstu verðlaun, glæsihryssa þar á ferð sem fékk 9 fyrir tölt og fegurð í reið. Aldrei að vita nema hún komi fram á fleiri vígstöðvum. Vordís frá Kjarnholtum fór í fín önnur verðlaun með 8.5 fyrir skeið, flugvakur viljagammur. Báðar þessa hryssur eru í eigu Birgis Leós Ólafssonar og Rögnu Björnsdóttur sem keyptu þær ungar í Kjarnholtum og eiga nú tvær virðulegar ræktunarhryssur. Til hamingju með það hjón!
Úlfur frá Ósabakka, Aronson rétt missti af því að ná 8 í aðaleinkunn ogá mikið inni, hestur með jafnar og góðar gangtegundir sem hefur allt til að bera til að verða sterkur fimmgangshestur í íþróttakeppni, skemmtilegur á litinn. Geðgóður með frábær gangskil. Magna frá Búlandi er frábær ahliða hryssa, geðgóð og viljug og enn mikið inni, fær 8 fyrir allar gangtegundir en þar ætlum við okkur að reyna að sækja meira. Það eru góðir vinir okkar, Marije og Cunera Rauwerda í Hollandi sem eiga Mögnu og verða ekki sviknar af henni, Magna stendur undir nafni og er mögnuð.
Saga frá Syðri-Úlfsstöðum er frábær gæðingur, Orradóttir en átti þvíi miður ekki góða daga. Þar er mikið að sækja og hún mætir örugglega aftur til dóms.
Mylla frá Árbakka er mikill spriklari. Hún er fædd 2005, árið sem við fluttum á Árbakka og hefur allt frá fyrstu tíð vakið athygli úti á túni. Ekki einungis fyrir litinn en hún er rauðskjótt, blesótt, heldur líka fyrir óvenjulegar hreyfingar. Hross með svona hreyfieðli þurfa tíma til að ná styrk og valda þeim og Mylla hefur ekki enn sagt sitt síðasta orð í kynbótadómi og mætir örugglega aftur. Hún hlaut núna 8.5 fyrir tölt, vilja og geðslag og fegurð í reið, 8.09 fyrir byggingu og 7,91 í aðaleinkunn og á mikið inni. Mylla er undan Illingi frá Tófum og Myrru frá Árbakka sem er hálfsystir Gellis frá Árbakka. Hún er óvenjuleg á að horfa og vakti athygli margra. Jón Bjarni Smárason sem vinnur hjá okkur hefur þjálfað Myllu af mikilli alúð í vetur og var trúað fyrir sýningu hennar. Hann leysti það verkefni af miklum sóma og var þetta í fyrsta skipti sem Jón sýnir hross í kynbótadómi. Til hamingju með það Jón Bjarni!
Myndirnar eru teknar af heimilsfólkinu á Árbakka, Huldu, Gústafi utan myndin af Vordísi sem er tekin af Sigurði Jenssyni, eiganda Glaðs, föður Vordísar.