Hestar til sölu
Blúnda frá Skíðbakka, a beutiful chestnut with light mane and tale and a blaze is for sale. She is pregnant after the great stallion Aron


 


 

Leita

_

Hestvit ehf er fyrirtæki sem Hinrik Bragason og Hulda Gústafsdóttir stofnuðu um rekstur hestaviðskipta sinna.

Fyrirtækið kaupir hesta og selur, annast hestaútflutning sem og kennslu og hvers konar ráðgjöf, innanlands sem utan.  Það kemur einfaldlega að öllu sem lýtur að íslenska hestinum!

Á þessum síðum má finna ýmsar upplýsingar um fyrirtækið og þau sem á bak við það standa. 

NEW!  From now on the "horses for sale" page and the "export" page will be in English.   The breeding page is now ready, there you will find information about our stallions and breeding mares and their offsprings.  Some of the young ones may be for sale, just ask if you are interested!   Have fun looking!

Góða skemmtun við að skoða og takið eftir myndinni hér efst, þar er ekki allt sem sýnist....


06. júlí 2010 | 13:06

Síðasta Aronsfolaldið þetta árið - Drífandi frá Árbakka

Þá er síðasta Aronsfolaldið þetta árið komið í heiminn.  Fallegur Aronssonur undan Drífu frá Miðhjáleigu, alhliða hryssu undan Stormi frá Bólstað.  Drífandi frá Árbakka varð hann að heita.

Þetta árið komu þrjú Aronsbörn, ein hryssa, Mara  og tveir hestar þeir Gabríel og núna Drífandi.  

Eftir góða útkomu Aronsbarna í kynbótasýningum um allt land í vor get ég varla beðið fram á haust með að byrja að temja fyrsta árganginn okkar undan Aroni enda hvert glæsitryppið þar af öðru.  Þessi þrjú bætast í þann hóp!



                        Hestvit ehf.  - Hinrik og Hulda - Árbakki - 851 Hella- sími 897 1748 og 897 1744 - hestvit@hestvit.is