NEW! From now on the "horses for sale" page and the "export" page will be in English. The breeding page is now ready, there you will find information about our stallions and breeding mares and their offsprings. Some of the young ones may be for sale, just ask if you are interested! Have fun looking!
Góða skemmtun við að skoða og takið eftir myndinni hér efst, þar er ekki allt sem sýnist....
Já, folöldin tínast í heiminn eitt af öðru. Nú er það hún Edda frá Skíðbakka, fyrstu verðlauna alhliða hryssa sem kastaði jarpstjörnóttu hestfolaldi, Elís frá Árbakka. 21. júní er hann fæddur þessi glæsti foli.
Elís er, eins og hin Hnokkabörnin, háfættur með einkar glæsilega frambyggingu, langan, vel settan og reistan háls. Svo svífa þau um, þessi folöld, á tölti eða brokki, léttstíg og nota hálsinn eins og best verður á kosið. Það sést skemmtilega á mynd af Val frá Árbakka í annarri frétt hér á síðunni.