NEW! From now on the "horses for sale" page and the "export" page will be in English. The breeding page is now ready, there you will find information about our stallions and breeding mares and their offsprings. Some of the young ones may be for sale, just ask if you are interested! Have fun looking!
Góða skemmtun við að skoða og takið eftir myndinni hér efst, þar er ekki allt sem sýnist....
Þeir eru margir gömlu vinirnir sem eru farnir til útlanda en þar með lýkur ferli þeirra sjaldnast. Þeir eiga sér líf þar og margir langt og gott. Ég ætla núna af og til að finna til gamlar og nýjar myndir af gömlum vinum og byrja hér á Stefni nokkrum frá Tunguhálsi.
Stefnir frá Tunguhálsi kom fyrst í þjálfun í okkar hendur 6 vetra gamall, þá í eigu ræktanda síns, Guðsteins Guðjónssonar. Seinna varð úr að við keyptum hestinn og mál þróuðust þannig að Hulda þjálfaði Stefni mestan part og hann varð hennar aðalkeppnishestur til nokkurra ára.
1994 komust þau í B úrslit í fimmgangi á Íslandsmóti, sigruðu þau og komust í þriðja sæti. Árið eftir var HM ár og var það nokkuð ævintýralegt. Til að byrja með var úrtaka sem ekki gekk nógu vel. Hesturinn var seldur seinnipart vetrar þannig að ljóst var að hann færi utan. Eftir gott gengi á Íslandsmóti þar sem Stefnir og Hulda urðu í öðru sæti, 0,01 á eftir sigurvegara fimmgangsins, Atla Guðmundssyni og Hróðri frá Hofsstöðum. Einnig sigruðu þau fyrstu keppnina sem haldin var það árið á Íslandsmóti í nýrri grein, slaktaumatölti. Úr varð að Stefnir og Hulda voru skráð varakeppendur á HM þar sem Stefnir færi út hvort sem var. Þegar til kom duttu þau inn í liðið og varð árangurinn glæsilegur. Þriðja sætið í slaktaumatölti og annað sæti í fimmgangi í glæsilegum þreföldum sigri Íslendinga í fimmgangi, Siggi Matt og Huginn frá Kjartansstöðum sigruðu, Hulda og Stefnir önnur og Einar Öder og Mökkur frá Þóreyjarnúpi voru í þriðja sæti.
En sögu Stefnis lýkur ekki hér. Hann rataði í góðar hendur Silke nokkurar Veith sem margir þekkja á Íslandi. Dýralæknir og Íslandsvinur. Þar hefur hann átt góða daga. Þau eiga farsælan feril á keppnisvellinum, voru lengi framarlega í Þýskalandi í slaktaumatölti og stóðu sig vel í fimmgangi.
Núna er Stefnir 24 vetra og enn í toppformi. Nú er hann í mikilvægasta hlutverkinu, nefnilega að þjóna ungri dömu, dóttur Silke, Möru Veith sem nú er að byrja að keppa á honum. Stefnir er algerlega óbilaður til fótanna og eins og sjá má af myndunum lítur hann glæsilega út enda hefur alla tíð verið ákaflega vel um hann hugsað.
Við fáum reglulega af honum fréttir og hér deili ég þessu með ykkur, lesendur góðir. Góða skemmtun við að skoða myndirnar sem eru úr ýmsum áttum.