Hestar til sölu
Diðrik frá Grenstanga is born 2001, is a chestnut, 144 cm big, a great riding horse, ready for everything. He has been well


 


 

Leita

_

Hestvit ehf er fyrirtæki sem Hinrik Bragason og Hulda Gústafsdóttir stofnuðu um rekstur hestaviðskipta sinna.

Fyrirtækið kaupir hesta og selur, annast hestaútflutning sem og kennslu og hvers konar ráðgjöf, innanlands sem utan.  Það kemur einfaldlega að öllu sem lýtur að íslenska hestinum!

Á þessum síðum má finna ýmsar upplýsingar um fyrirtækið og þau sem á bak við það standa. 

NEW!  From now on the "horses for sale" page and the "export" page will be in English.   The breeding page is now ready, there you will find information about our stallions and breeding mares and their offsprings.  Some of the young ones may be for sale, just ask if you are interested!   Have fun looking!

Góða skemmtun við að skoða og takið eftir myndinni hér efst, þar er ekki allt sem sýnist....


23. 07. 2010 | 13:45

Eftir dálitla umhugsun var ákveðið að skella sér á Sumarsmell Harðar og keppa þar á þeim Kjuða og Sveig.  Og þau Hulda og pésarnir hennar, eins og þeir Sveigur og Kjuði eru kallaðir á Árbakka, gerðu góða ferð þangað.

22. 07. 2010 | 11:22

Uppáhaldshryssan hans Hinna, vekringurinn Toppa frá Ármóti var næst til að skila folaldi.  Þann 27. júní kastaði hún fífilbleikblesóttri hryssu, hennar fyrstu hryssu.

13. 07. 2010 | 19:44

Helgina 2. og 3. júlí var haldið íþróttamót í Reykjavík, það fyrst utandyra þetta árið sem fjölskyldan á Árbakka mætir á.

13. 07. 2010 | 11:22

Í mörg ár er ég búin að bíða eftir eihver hryssan okkar kasti leistóttu merfolaldi!  Og loksins núna er hún Ljónslöpp loksins komin aftur í mínar hendur.

08. 07. 2010 | 09:17

Eftir skrýtið vor mættu hross í fyrsta skipti á þessu ári til kynbótasýninga úr hesthúsinu á Árbakka.  Það var eiginlega einkennileg tilfinning að vera aftur mættur í "vinnuna", að sýna og keppa á hrossum.

06. 07. 2010 | 13:06

Þá er síðasta Aronsfolaldið þetta árið komið í heiminn.  Fallegur Aronssonur undan Drífu frá Miðhjáleigu, alhliða hryssu undan Stormi frá Bólstað.  Drífandi frá Árbakka varð hann að heita.

06. 07. 2010 | 10:11

Já, folöldin tínast í heiminn eitt af öðru.  Nú er það hún Edda frá Skíðbakka, fyrstu verðlauna alhliða hryssa sem kastaði jarpstjörnóttu hestfolaldi, Elís frá Árbakka.

04. 07. 2010 | 11:35

Þau tínast í heiminn þessa elskur, hér eru myndir af Val frá Árbakka sem fæddist 12. júní.  Myndirnar eru teknar af honum vikugömlum.

22. 06. 2010 | 10:37

Þeir eru margir gömlu vinirnir sem eru farnir til útlanda en þar með lýkur ferli þeirra sjaldnast.  Þeir eiga sér líf þar og margir langt og gott.   Ég ætla núna af og til að finna til gamlar og nýjar myndir af gömlum vinum og byrja hér á Stefni nokkrum frá Tunguhálsi.

21. 06. 2010 | 18:08

Nú birtir yfir Árbakkaliðinu; hestarnir eru að komast í þjálfun aftur og veikindin í rénum.  Eftir nokkurra vikna girðingarvinnu og fleiri tengd verkefni er byrjað að þjálfa hestana aftur og nokkur hross mæta í kynbótadóm í næstu viku.



                        Hestvit ehf.  - Hinrik og Hulda - Árbakki - 851 Hella- sími 897 1748 og 897 1744 - hestvit@hestvit.is