Árið 2004 verður að teljast gott ár á þessum vígstöðvum.
Við vorum svo heppin að fá að ríða og vera með margan góðan gæðinginn þetta árið. Það er hreint frábært, þá sjaldan við fáum tækifæri til þess, að vera með sama hrossið í meira en eitt ár. Í þessum flokki voru Saga og Skemill þetta árið og gaman að finna í upphafi vetrar að þau hafa engu gleymt og nú var hægt að halda áfram að bæta og styrkja. Enda stóðu þau skötuhjúin sig heldur betur vel þetta árið.
Saga sigraði opið vormót og Skemill varð í öðru sæti, í úrtöku fyrir LM varð svo Saga í öðru sæti og Skemill í því þriðja. Saga varð svo í 10. sæti á Landsmótinu og Skemill í því þriðja. Á Íslandsmótinu þremur vikum seinna, var Skemill í feikna stuði, varð þriðji í gæðingaskeiði, Saga önnur, Saga var svo í B úrsltium í 5 gangi en Skemill varð Íslandsmeistari í fimmgangi og skeiðtvíkeppni. Hulda fékk jafnframt Gregesen styttuna fyrir prúðmannlega reiðmennsku og snyrtilegan klæðaburð á úrtöku Fáks.
Annar góður hestur sem vert er að geta sérstaklega er Sjarmi frá Skriðuklaustri. Hann keyptum við haustið áður og sáum í honum spennandi efni í töltara. Það stóð heima, hann óx með hverri raun, vakti fyrst athygli á Ístölti og svo stuttu seinna þar sem hann varð í þriðja sæti á Landsliðstölti í Egilshöll. Svo sigraði hann kvennatöltið og eftir veturinn vorum við í skýjunum með að hann skyldi komast í A úrslit á Íslandsmóti og fá hátt í 9 fyrir hægt tölt og vera efstur eftir það atriði. Sjarmi er nú kominn til nýs eiganda í Austurríki og verður spennandi að sjá hann á komandi ári.
Svo verður að minnast á Eddu Hrund sem kom sér á kortið í barnaflokki. Komst í fimmta sæti í feikn sterkum barnaflokki á Landsmóti með Snæfaxa frá Selfossi, og varð svo Íslandsmeistari í samanlögðu á Ísak frá Ytri-Bægisá auk þess að vera í úrslitum bæði í fjórgangi og tölti. Hún varð einnig í 5. sæti í gæðingaskeiði á Lukku frá Gýgjarhóli.
Fleiri frábærir hestar sem við vorum með þetta árið voru Víkingur frá Efri-Gegnishólum, Glæsir frá Ytri-Hofdölum, Snæfaxi frá Selfossi, Óskahrafn frá Brún, Ýlir frá Engihlíð, Sölvi frá Gíslabæ og fleiri og fleiri.
Að auki gladdi það okkur að hestur sem við áttum og sýndum til sinna hæstu einkunna hlaut heiðursverðlaun fyrir afkvæmi á árinu, Óður frá Brún. Það er heiður að hafa kynnst svona höfðingja og gaman að sjá glæst hross á vellinum undan honum.
Á uppskeruhátíð Fáks í desember 2004 var Hinrik valinn íþróttamaður Fáks árið 2004.