Nú vorum við mætt aftur á klakann.  Það er ekki hlaupið að því að koma sér upp nýjum flota af keppnishestum svo þetta fór nú allt rólega af stað. 

Sumarið 2001 höfðum við hægt um okkur, fórum til Austurríkis og fylgdumst með HM þar.  Um verslunarmannahelgina það árið, keyptum við svo Kólf frá Stangarholti sem aldeilis reyndist okkur vel í þau ár sem við áttum hann.  Hulda og Hinrik kepptu bæði á honum, Hulda sigraði B flokk í opinni gæðingakeppni vorið 2002 og Hinrik komst svo inn á Landsmót á honum.  Varð reyndar í 4 sæti í úrtökunni, beint á eftir þeim hestum sem svo voru í efstu sætum á Landsmótinu sjálfu.   Á Landsmótinu 2002 gekk svo allt á afturfótunum svona eins og gengur.  Á Suðurlandsmóti það ár var Hulda svo aftur á honum og gekk vel, var í úrslitum bæði í fjórgangi og tölti.  Kólfur var seldur Valdimar Bergstað og fjölskyldu sem sigraði á honum unglingaflokk á LM2004 á Hellu.  Kólfur var keyptur sem alhliða hestur en þróaðist sífellt meir í klárhestaátt, svo niðurstaðan var að ríða honum sem klárhesti.  Hann er eins og hann á kyn til, feiknalegur rýmishestur og fótaburðurinn verður hreint ævintýralegur þegar hann er kominn á fulla ferð.

Veturinn 2003 komust svo bæði Saga og Skemill í okkar eigu og þá færðist fjör í leikinn, auk þess sem stóðhesturinn Höfgi frá Ártúnum var kominn í flotann.  Á árinu 2003 var Skemill í B úrslitum á Íslandsmótinu í hestaíþróttum og Höfgi í B úrslitum í tölti og fjórgangi og Saga varð Íslandsmeistari í gæðingaskeiði í opnum flokki.  Í úrtökunni gekk líka ágætlega þótt ekki tækist að tryggja sæti í landsliðinu. 

Edda Hrund fór að gera sig gildandi, fyrst í pollaflokki og komst svo aðeins 9 ára inn á Landsmót 2002 með Alvar frá Síðu og stóð sig með miklum ágætum, brosti út að eyrum alla sýninguna og hafði mikið gaman af öllu saman.  Og þá er tilgangnum jú náð, ekki satt?



 


                        Hestvit ehf.  - Hinrik og Hulda - Árbakki - 851 Hella - sími 897 1748 og 897 1744 - hestvit@hestvit.is