Í byrjun september, rétt áður en við fórum út til Spánar í frí, tókum við inn allar hryssur á fjórða vetur og geldinga á fimmta vetur. Susi Haugard kom til okkar og hún ásamt hinni þýsku Ninju Borgman voru við tamningar út nóvember. Það er skemmst frá því að segja að þau fóru mjög vel af stað, engin vandamál komu upp, 4 hryssur seldust reyndar fljótlega.
Þessi tryppi lofa góðu en þetta er annar hópurinn sem við frumtemjum hér á Árbakka. Flest undan Gelli frá Árbakka, þeim þekkta íþróttakeppnishesti en einhver undan Tý frá Árbakka sem er alhliða fyrstu verðlauna hestur sem farinn er til Bandaríkjanna. Tryppin eru almennt mjög myndarleg, ýmist klárhross eða alhliða geng og fótaburður almennt góður og nokkur eru einfaldlega verulega efnileg. Þennan hóp tökum við aftur til með vorinu, þau eru núna úti á fullri gjöf og hafa það gott
Myndvinnslan á heimsíðunni hefur verið í smá ólagi svo hér birtist því miður engin mynd. Þetta stendur allt til bóta og verður vonandi komið í lag á allra næstu dögum. Reyndar klikkaði ég alveg á að taka myndir af þessum hópi, held ég eigi ekki eina einustu! En ég er að reyna að herða mig að taka myndir.
Newsflash ; þetta virðist vera komið í lag og á myndinni er eitt tryppið, Kæla frá Árbakka að sýna okkur hvað hún kann fínt að gefa eftir. Við tauminn er Ninja Borgmann, nýr liðsmaður á Árbakka.