Metamót Andvara var haldið aðra helgina í september. Þar sem því var seinkað um eina viku var frúin fjarri góðu gamni, hafði sett á sig námskeið í Þýskalandi með árs fyrirvara og var ekki par hress :)
Húsbóndinn á heimilinu var því fulltrúi fjölskyldunnar og stóð sig með sóma eins og hans er von og vísa. Skúmur fór í úrslit í B flokki og hann kom Vikari frá Torfastöðum og Galdri frá Flagbjarnarholti í úrslit í A flokki. Frúin hafði nú yfirleitt sýnt Galdur, sem annars er í eigu góðvinar okkar, Hilmars Binder, en í þetta skiptið fékk kallinn að spreyta sig með þessum líka fína árangri.
Úrslit fóru þannig að Skúmur hafnaði í 6. sæti, Galdur í því 10. eftir að hafa misst skeifu, en það var Viðar Ingólfssons sem sýndi hann í úrslitunum og VIkar hafnaði í 5. sæti. Viðundandi árangur á feikna sterku móti að koma öllum hestum í úrslit. Að auki var fjölskylduhesturinn Glæsir í töltinu og var þar í A úrslitum en hætti keppni eftir að hafa misst skeifu.