| Fréttir 2007

Lissa fer í frí

Gæðingshryssan og prímadonnan List frá Vakurstöðum hefur tölt sitt síðasta mót.  Stefnan var sú í upphafi vetrar að eftir Íslandsmót skyldi hún til stóðhests og hennar ferli sem keppnishryssu skyldi lokið í bili, hvað sem síðar verður.  Hún er nú fylfull við gæðingnum Veigari frá Vakurstöðum.  Veigar var í flokki 5 vetra stóðhesta á Landsmótinu og var þar í 11 sæti.  Hann er undan Orra frá Þúfu og Sölku frá Votmúla.  Hann var í sumar í eigu Vakurstaðafjölskyldunnar sem tók þá ákvörðun að láta það ganga fyrir þetta árið að koma í List folaldi heima við undir eftirliti frekar en að senda hana í girðingu hjá einhverjum af þeim topphestum sem hún á örugglega eftir að heimsækja líka á næstu árum.  List í garðinum á Árbakka

Svo nú fær mín að borða alveg eins og hún vill, verða feit og fín og er að sögn eigendanna, Halldóru og Valdimars á Vakurstöðum nú þegar búin að taka öll völd í hryssuhópnum.  Enda áhugavert að sjá hvað gerist þegar hryssa sem verið hefur í keppnisþjálfun til margra ára hefur allt í einu ekkert að gera nema að komast fyrst að heyinu.

Árangurinn ekkert til að væla yfir.  Meðaleinkunn vel yfir 8 í töltkeppni, erum ofarlega á Worldranking listanum í tölti, tvöfaldir Reykjavíkurmeistarar, Suðurlandsmeistari, 2 sæti á Landsmóti, 3 og 2 sæti á Íslandsmóti og síðast en ekki síst 10 fyrir tölt í kynbótadómi, einkunn sem einungis 7 önnur hross hafa hlotið í heiminum.

Við kveðjumst sáttar við List, það er heiður að fá að vinna með svona höfðingjum eins og List er, stórlynd og getumikil og við á Árbakka óskum henni og eigendunum margra og góðra folalda í framtíðinni.    Frábær félagi í leik og starfi, jafnt á útreiðum sem og á ferðalagi og í keppni.  Ég vil líka þakka eigendunum það traust að treysta mér fyrir þessum gæðingi í eitt og hálft ár, það er dýrmæt reynsla og heiður að fá að kynnast afrekshrossi eins og List.

Hér með er skemmtileg mynd sem vinur okkar Kristján Þór Finnsson tók liggjandi á maganum hér í garðinum á Árbakka í sumar og sýnir List við þá iðju sem henni finnst ákaflega skemmtleg; að úða í sig grasi!

Til baka


                        Hestvit ehf.  - Hinrik og Hulda - Árbakki - 851 Hella - sími 897 1748 og 897 1744 - hestvit@hestvit.is