| Fréttir 2007

Fyrstu helgina í mars er árlegt kvennakvöld Fáks ávallt á dagskrá. Þetta árið engin undantekning. Þemað hattar! Jóhanna fylgihlutakaupmaður send út af örkinni og kom með þessi ekki líka glæsilegut hatta frá Þýskalandi sem við krýndumst svo einar 8 kellíngar. Og litaþema borðsins þar með ráðið, rautt og

| Fréttir 2007

Í smalann fórum við í hestabankann okkar og Hulda fór á Sögu frá Lynghaga og Hinni á Hauki frá Akurgerði. Ekki gafst ýkja mikill tími til æfinga og árangurinn eftir því, Hinni rétt náði í úrslit á Hauki og Hulda var einhversstaðar um 15. sætið. Greinilegt að þeir sem æfðu

| Fréttir 2007

Skemmst er frá því að segja að mæting var góð, allflestir eigendur mættu og skoðuðu klárinn sjálfan og nokkur afkvæmi hans og gæddu sér á veitingum. Í reið voru sýnd Borgar frá Strandarhjáleigu, Hula frá sama stað og Tangó frá Strandarhöfði, öll á fimmta vetur og einn foli, rauðskjóttur, Örn

| Fréttir 2007

Þar, rétt við bæ sem heitir Landshut, norðan við Muenchen býr Wagners fjölskyldan með um 100 hross á 40 hekturum sem þykir mjög gott þar í landi. Steffi Wagner, dóttirin er menntaður reiðmaður, hefur farið í gegnum hið þýska reiðmenntakerfi, er svokallaður "Trainer A" og tók tamningapróf þar

| Fréttir 2007

Fimmgangurinn var geysisterkur, hestar eins og Þokki frá Kýrholti, Stakkur frá Halldórsstöðum, Riddari frá Krossi, Þytur frá Kálfhóli, Skugga-Baldur frá Litla-Dal, Hrannar frá Þorlákshöfn og margir fleiri hestar sem náð höfðu geysigóðum árangri voru skráðir til leiks. Hinni reið nýjum hesti, Óríon frá Lækjarbotnum undan Gusti frá Hóli, flugvökrum gæðingi

| Fréttir 2007

Mánudaginn 9. apríl var svo keppt í gæðingaskeið og 150 m skeiði í Meistaradeildinni. Hjónin héldu á Hellu, rétt við túnfótinn með fáka sína. Hinni tók hinn nýja flugvakra Óríon frá Lækjarbotnum og Hulda ákvað að nota gömlu og góðu Sögu frá Lynghaga. Saga er með 8,51 fyrir

| Fréttir 2007

Í janúar gerði mikið snjóveður hér á Suðurlandi eins og flesta kannski rekur minni til. Varð þá til í garðinum hjá okkur feiknamikill skafl þar sem ég meðal annars tók myndir af börnunum upp á og birti hér á síðunni. Nú þegar vorið er að nálgast situr enn

| Fréttir 2007

Sú bjartsýnasta veðjaði á 16. maí en reyndin var sú að hann hvarf 28. apríl eftir góðan hlýindakafla. Frúin reyndar stödd í Austurríki akkúrat þá en hafði vit á að taka mynd daginn áður en hún fór til Austurríkis og svo aftur þann 5. maí þegar vel er

| Fréttir 2007

Það var mikil og góð stemmning á mótinu enda til mikils að vinna og mjótt á munum á milli efstu knapa. Eftir spennandi keppni þar úrslitin réðust ekki fyrr en í síðustu skeiðsprettum hafði Viðar Ingólfsson sigur á undan Sigurði Sigurðarsyni og Sigurbirni Bárðarsyni. Þorvaldur Árni sem var efstur fyrir

| Fréttir 2007

Gústaf keppti á Firmakeppni Fáks, eini fulltrúi fjölskyldunnar þar og gerði sér lítið fyrir og sigraði barnaflokkinn á Knörr frá Syðra-Skörðugili, hinum 11 vetra bleikálótta geldingi sínum. Og bæði fóru systkinin svo á Líflandsmótið í Reiðhöllinni helgina eftir og stóðu sig með mikilli prýði. Edda varð 7. í fjórgangi á

| Fréttir 2007

Þetta er allt með ráðum gert, Tangó Daníels Inga Smárasonar var hér í heimsókn í lok febrúar og nú skyldi fjölgað í hundafjölskyldunni og spennan var mikil . Og í heiminn komu fjórir sprækir, pínulitlir hvolpar, 3 tíkur og 1 hundur. Tvær tíkurnar eru nánast eins og Tangó

| Fréttir 2007

Þann 2. maí fæddist fyrsta folaldið á Árbakka. Hlaut það umsvifalaust nafnið Vorboði frá Árbakka. Þetta folald er undan Aroni frá Strandarhöfði og Toppu frá Ármóti, skeiðhryssunni hans Hinna sem flaug um skeiðvellina í fyrrasumar með þetta folald innanborðs. Ennþá er kappinn skjóttur og sýnir engin merki um að

Fyrri síða
Næsta síða


                        Hestvit ehf.  - Hinrik og Hulda - Árbakki - 851 Hella - sími 897 1748 og 897 1744 - hestvit@hestvit.is