Árið 1997

Árið 1997 var Hljómur orðinn 6 vetra gamall og nú var hann skráður í gæðingakeppni Fáks.  Hana sigraði hann nokkuð örugglega með ekki ófrægari hest en Reyk frá Hoftúni í öðru sæti. 

Íslandsmót í hestaíþróttum var haldið á Vindheimamelum þetta ár.  Hulda mætti þar með Pistil frá Búlandi sem var þá nýkominn í okkar eigu.  Þau urðu Íslandsmeistarar í fimmgangi og þriðju í gæðingaskeiði og í öðru sæti í 250 metra skeiði.  Mikill gæðingur þar á ferð.  Pistill er hálfbróðir Klakks frá Búlandi sem seinna varð svo heimsmeistari í fimmgangi.  Hulda varð einnig Íslandsmeistari í slaktaumatölti á Nirði frá Aðalbóli.

Á heimsmeistaramót í Noregi fórum við en í fyrsts skipti í langan tíma án þess að vera sjálf með hest.   Ekki var sveitin okkur þó alveg óviðkomandi því við höfðum fyrir mót keypt hlut í Glað frá Hólabaki sem seinna kemur við sögu auk þess sem við keytpum eftir mótið Gordon frá Stóru-Ásgeirsá og seldum áfram til núverandi eiganda, Bernds Schliekermann.

Annars bar það helst til tíðinda að í ágústmánuði þetta ár flutti fjölskyldan búferlum til Þýskalands með allt sitt hafurtask, hesta og hvaðeina. 

Þar var eitt okkar fyrst verk að mæta á Norðurþýskt meistaramót og þar gekk alveg ljómandi vel, sigrar í höfn í nokkrum greinum, svo byrjunin lofaði góðu. 



 

 


                        Hestvit ehf.  - Hinrik og Hulda - Árbakki - 851 Hella - sími 897 1748 og 897 1744 - hestvit@hestvit.is