Árið 1993 var það stærsta fram að því hjá Hinna. Fyrir það fyrsta varð hann Íslandsmeistari í fjórgangi á Goða Snældu-Blesasyni frá Voðmúlastöðum. Íslandsmótið var þetta árið haldið á Akureyri. Hann komst einnig í úrslit í fimmgangi á Sindra hennar Huldu, sem var ansi skondið og skildi hana eftir í 6. sæti á hennar nýja keppnishesti, Stefni frá Tunguhálsi, sem við fáum brátt að lesa meira um.
Í úrtöku fyrir HM 1993 í Hollandi komst Hinrik svo inn með Eitil sinn ásamt því sem Hrefna frá Gerðum var fulltrúi Íslands í eldri flokki hryssa.
Hrefna sigraði þann flokk svo Hinni varð þar heimsmeistari. Og eftir mikla baráttu, aðallega við Veru Reber á Frosta varð Hinni heimsmeistari í 250 skeiði. Hann varð í fimmta sæti í gæðingaskeiði.
Um haustið var haldið skeiðmeistaramót í Roderath í Þýskalandi og þangað fóru hjónin. Þar varð Eitill samanlagður sigurvegari, sigraði 250 metrana og gæðingaskeiðið og var í úrslitum í A flokki, sannkölluð sigurganga, svo ekki sé meira sagt. Eitill komst eftir HMí eigu Augustar Beyer sem ávallt hefur hugsað vel um þennan höfðingja. Þegar við svo fluttum til Þýskalands gaf August Hinna aftur hestinn en hann er núna hjá Augusti, ótrúlega fit og flottur, tuttugu vetra orðinn, þegar þetta er ritað 2004. Eitill á enn eftir að koma við sögu!