Þetta ár varð Hinni Norðurlandameistari í tölti á Pjakki frá Torfunesi. Ekki síðri árangur var það að hann varð í öðru sæti í fjórgangi á þessu móti sem þóttu tíðindi þar sem fjórgangur hafði ekki verið sterkasta hlið Pjakks fram að þessu.
Þá reið Jón Steinbjörnsson Mekki frá Flugumýrarhvammi, sem Hinrik hafði áður verið með og var í eigu Augustar Beyer og urðu þeir í öðru sæti í tölti og unnu fjórganginn. Svo þetta varð heldur betur gott mót fyrir þá félaga og ekki bara þá, heldur náðu Íslendingar ótrúlegum árangri á þessu móti undir liðsstjórn Aðalsteins Aðalsteinssonar og Unn Kroghen.