Árið 1990 var fyrsta árið sem Eitill frá Akureyri var á keppnisbrautinni. Eitill er sá hestur sem Hinni hefur unnið sína stærstu og langflesta titla á, allavega þegar þetta er ritað í desember 2004. Eitill er fæddur 1984 og er undan Náttfara frá Ytra-Dalsgerði og Dimmalimm frá Gilsbakka. Hann var fæddur Birni Þorsteinssyni á Akureyri og af honum keyptum við hestinn haustið 1989. Eftir af hafa verið með lítinn hest í keppni, Vafa frá Hvassafelli var Hinni ákveðinn í að finna myndarlegan arftaka sem væri stór og stæðilegur en við hrifumst svo af Eitli á afleggjaranum heim að Litla-Garði þar sem hann þeyttist á flugaskeiði að þar varð ekki aftur snúið.
Eitill fór ekkert á kappreiðabrautina þetta árið en var byggður upp og mætti svo í úrtöku fyrir Landsmót 1990 og vann sér þar sæti í A flokki, einungis 6 vetra gamall. Þar náði hann mjög ásættanlegum árangri. Hann varð í tólfta sæti með einkunnina 8,59 á eftir Koli frá Stóra-Hofi og Atla Guðmundssyni sem fengu 8,60 og voru í 11. sæti. Kolur komst svo seinna í okkar eigu og fylgdi okkur í mörg ár úti í Þýskalandi.
Eitill var stórbrotinn hestur, smár á velli og ekki reisulegur. En hann bætti það upp með snerpu og einstöku keppnisskapi og rými sem ekki finnst á hverju strái. Hann átti eftir að koma mikið við sögu á næstu árum.
En Eitill var ekki eini hesturinn sem Hinrik kom inn á Landsmótið 1990. Hann reið einnig Fjölva frá Hvammstanga og kom honum í úrslit þar sem þeir enduðu í 10. sæti. Einnig komst Darri frá Litlu-Gröf, undan hinum þekkta gæðingi Aron frá Litlu-Gröf inn á Landsmótið í tölti og urðu þeir í fimmta sæti í töltinu.