Hér er ađ finna myndir frá árinu 1989. Ţađ ár komst Hinrik í fyrsta skipti í Landsliđ Íslands og tók ţar ţátt á hestinum Vafa frá Hvassafelli. Ţađ mót fór fram í Vilhelmsburg, ekki langt frá Arhus á Jótlandi. Vafi var undan óţekktum hrossum en var hálfbróđir hins ţekkta Eldjárns frá Hvassafelli sem sigrađi A flokk á Landsmóti 1982. Vafi var ekki stór hestur en flínkur og mikiđ vakur. Töltiđ batnađi sífellt viđ ţjálfun og ţeir félagar urđu t.d. Suđurlandsmeistarar í fimmgangi áriđ áđur. Á HM urđu ţeir í öđru sćti í gćđingaskeiđi en gekk ekki sem skyldi í hinum greinunum, fimmgangi og tölti. Skeiđvöllurinn var ákaflega gljúpur og sendinn og var Vafa, svona litlum hesti ákaflega erfiđur og varđ ţađ til ţess ađ hann greip leiđinlega á sig snemma á mótinu og sýndi ţví ekki sínar bestu hliđar ţađ sem eftir lifđi móts.
Ţetta ár fór Huldu ađ ganga betur í keppni á Sindra sínum. Sindri er frá Kópavogi og var annar hesturinn sem hún eignađist, eftir ađ hafa ţurft ađ fella fyrsta hestinn sinn vegna fótameins. Sindra tamdi hún algerlega sjálf og reyndist henni prýđilega í keppni. Ţetta ár sigrađi hún fimmgang í Gusti og var ekki lítiđ stolt af. Ađ auki kom hún honum í úrslit á Landsmóti ungmennafélaga í Mosfellssveit. Svo Mósi var heldur betur ađ byrja ađ virka. Sindri var undan sýndri Kolkuóshryssu, Perlu frá Kópavogi og Mósart frá Kópavogi, Ófeigssyni sem var fćddur Zophoníasi Márussyni í Gusti.